Þriggja ára tilraunaverkefni í Breiðholti

Kynningarmynd tilraunaverkefnisins er táknræn fyrir fjölmenningarsamfélagið í Breiðholti.

Frístundir í Breiðholti er þriggja ára tilraunaverkefni sem á að vinna á árunum frá 2020 til 2023. Eftir að borgarráð samþykkti að hefja þetta verkefni var því vísað til meðferðar þjónustumiðstöðvar Breiðholts sem hefur unnið að útfærslu þess í samráði við íþrótta- og tómstundasvið, skóla- og frístundasvið, Íþrótta­bandalag Reykjavíkur og íþrótta- og frístundaaðila í Breiðholti. Markmiðið með þessu verkefni er að auka þátttökuhlutfall barna í íþrótta- og frístundastarfi í Breiðholti til jafns við meðaltal í Reykjavík og að að auka nýtingu frístundakortsins í Breiðholti til jafns við meðaltal í Reykjavík og auðvelda samfélagslega þátttöku. Verkefninu verður stýrt frá Þjónustumiðstöð Breiðholts og fellur undir Heilsueflandi Breiðholt.

Börnum í 1. og 2. bekk verður gert kleift að prófa að fært sig á milli íþrótta- og frístundakosta án aukagjalds. Börnum á þessum aldri mun standa til boða að færa sig á milli og reyna sig í mörgum íþrótta- og frístundakostum gegn einu gjaldi á þessu tveggja ára tímabili. Valmöguleikarnir gætu t.d. verið knattspyrna, handknattleikur, körfuknattleikur, frjálsíþróttir, sund, keila, karate, skíði, júdó, taekwondo, fimleikar, hjólreiðar, klifur, skátastarf, skák, dans, ballett og tónlistarnám.

Íþróttir og frístundir frá kl. 14 til 18

Íþróttir og frístundir fyrir tvo yngstu aldurshópanna munu standa til boða eftir skólalok frá kl. 14:00 til 18:00 á virkum dögum. Gjaldfrí frístundarúta með leiðsögumanni á að veita börnum þjónustu á tímabilinu 14:00 til 18:00 alla virka daga til að auðvelda þeim að komast á milli skóla, íþróttaæfinga, frístunda og heimilis. Kynning á íþrótta- og frístundastarfi verður sameiginlegt verkefni Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, grunnskólanna, íþrótta- og frístundaaðila í náinni samvinnu við samtök íbúa af erlendum uppruna. Þá verður sérstök áhersla lögð á að í íþrótta- og frístundastarfinu fari fram markviss örvun og kennsla í íslensku og félagslegum tengslum með það að markmiði að auðvelda þátttakendum félagslega aðlögun að íslensku samfélagi.

Frístundaþátttaka óháð bakgrunni og efnahag

Gert er ráð fyrir að Þjónustumiðstöð Breiðholts, grunnskólar, íþrótta- og frístundaðilar og foreldrar vinni markvisst að því að auðvelda íþrótta- og frístundaþátttöku allra barna í Breiðholti óháð bakgrunni og efnahag. Þá verður sérstakur sjóður stofnaður til að greiða íþrótta- og frístundaaðilum fyrir umframkostnað vegna þátttöku í verkefninu og foreldrum þátttakenda til að standa straum af aukakostnaði, s.s. vegna þátttöku í viðburðum, kaupa eða leigu á búnaði. Íþróttaverkefni leikskólanna fyrir elsta árgang leikskólabarna sem var starfrækt árið 2019 í öllum leikskólum Breiðholts og gaf góða raun verði starfrækt áfram á tíma tilraunaverkefnisins.

Kortið nægi íþrótta- og frístundastarfi í 1. og 2. bekk

Gert er ráð fyrir að frístundakortið nægi fyrir þátttöku í öllu íþrótta- og frístundastarfi í 1. og 2. bekk. Allt íþrótta- og frístundastarf í Breiðholti fyrir börn í 1. og 2. bekk grunnskóla verði í boði allt árið gegn frístundakortsframlagi borgarinnar sem er kr. 50.000 árið 2020. Auk þess greiði Reykjavíkurborg kr. 30.000 með hverju barni þannig að framlag með hverju þeirra verði 80.000 krónur árin 2021 og 2022. Verkefnið hefst að hausti 2020 og því verði aukaframlagið fyrir það ár kr. 15.000 á hvert barn til að greiða fyrir þátttöku í verkefninu.

You may also like...