Nýtt fuglaskoðunarhús á Seltjarnarnesi

Eins og sjá má er góð aðstaða til að virða fuglalífið fyrir sér úr nýja fuglaskoðunarhúsinu.

Nýlega var lögð lokahönd á gerð fuglaskoðunarhúss við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Húsið fellur vel að landslaginu og hentar almenningi og grunnskólanemum á Seltjarnarnesi og víðar vel við fuglaskoðun og rannsóknir.

Bakkatjörn er einstök hvað varðar fjölskrúðugt fuglalíf allan ársins kring. Húsið er kjörið fyrir fuglaáhugamenn og ljósmyndara hvaðan æva að en hönnun þess býður upp á fyrsta flokks aðstöðu til að koma sér vel fyrir og sæta færis fyrir rétta myndaaugnablikið. Staðsetning hússins er nálægt bakkanum og veitir góða yfirsýn yfir Bakkatjörn þar sem fjöldi vaðfugla heldur til.

You may also like...