Umhverfisviðurkenningar 2019

Miðvikudaginn 16. október s.l. veitti Umhverfisnefnd Seltjarnarness fjórar umhverfisviðurkenningar. Að þessu sinni voru veittar viðurkenningar fyrir garð ársins, tré ársins, endurbætur á lóð og endurbætur á eldra húsnæði.

Garður ársins var valinn Fornaströnd 10. 
Eigendur hans eru Ása K. Oddsdóttir og Þorkell Bjarnason.
Viðurkenning fyrir endurbætur á lóð við Melabraut 31. 
Eigendur eru Elín Soffía Ólafsdóttir og Gylfi Magnússon.
Viðurkenning fyrir endurbætur á eldra húsnæði fékk húsfélagið að Eiðistorgi 1-9.
Tré ársins er glæsilegur hlynur sem stendur í bakgarði við Tjarnarmýri 17.
Eigendur eru Margrét Sveinsdóttir og Óli Björn Kárason.

You may also like...