Breytingar á umferð um Eiðistorg

– betri gönguleiðir og bætt umferðaröryggi –

Hér má sjá fyrirhugaðar breytingar.

Nú liggur fyrir tillaga að breytingu á svæðinu við Eiðistorg sem hefur það að markmiði að bæta umferðaröryggi og aðgengi skólabarna og annarra vegfarenda um og við torgið. Ráðist var í breytingarnar í ljósi fjölda ábendinga íbúa bæjarins. Skipulags- og umferðarnefnd hefur í samráði við umhverfissvið Seltjarnarnesbæjar og umferðar- og samgönguverkfræðing hjá VSÓ Ráðgjöf unnið að útfærslu til að bæta öryggi gönguleiða um og við Eiðistorg. Útfærslan var einnig unnin í samráði við hagsmunaaðila Eiðistorgs 11 til 17.

Fyrirhugaðar breytingar um og við Eiðistorg eru að Suðurmýri verður einstefnugata til norðurs frá gatnamótum Kolbeinsmýrar að Eiðistorgi samkvæmt deiliskipulagi. Tillaga að breyttri og öruggari gönguleið um og við Eiðistorg verður skilgreind annars vegar sunnan Eiðistorgs og yfir Nesveg og hins vegar milli Mýrarhverfis og verslana Eiðistorgs. Vegna gönguleiðar sunnan Eiðistorgs og yfir Nesveg verða eftirfarandi breytingar gerðar. Í fyrsta lagi verður núverandi gönguljósum á Nesvegi við Eiðistorg lokað og ný gönguljós sett sunnar. Í öðru lagi verða “koddar”, sem eru hraðatakmarkandi aðgerðir á Nesvegi færðir sunnar. Í þriðja lagi verður tengingu milli Suðurmýrar og Eiðistorgs lokað og ný útkeyrsla opnuð út á Nesveg við ný gönguljós. Í fjórða lagi verður verður akstri inn og út af bílaplaninu breytt í einstefnuakstur með þeim hætti að ekið verður inn á planið sunnan megin og út af planinu norðan megin. Þá verður lokað fyrir akstur meðfram horni verslunarhúsnæðis til að tryggja öruggari gönguleið frá Mýrarhverfi og að verslunarhúsinu í gegnum bílaplan Eiðistorgs. Akstur á milli svæða á bílaplani Eiðistorgs verður eftir breytingar einungis mögulegur á einum stað, þ.e. yfir nýja upphækkaða gönguleið nær Mýrarhverfinu.

You may also like...