Framkvæmdir hefjast í sumar

Þannig mun leikskólasvæðið lita út að framkvæmdum loknum.
Mynd Bsalt aritektar.

Borgarráð hefur samþykkt að nýr Miðborgarleikskóli og fjölskyldumiðstöð fari í útboð og að framkvæmdir geti hafist í júní. Svæðið er á Njálsgöturóló eða Njálsgötu 89 og stefnt er að því að byggingin og leiksvæðið verði fullbúið í lok árs 2023.

Um er að ræða leikskóla fyrir allt að 116 börn á aldrinum eins árs til sex ára en núverandi starfsemi skólans er við Njálsgötu, Lindargötu og Barónsstíg. En með nýbyggingunni verður starfseminni breytt og leikskólarnir Lindarborg og Njálsborg lagðir niður en áframhaldandi starfsemi verður á Barónsborg.

Fjölskyldumiðstöð og opinn leikskóli verður í byggingunni. Meginmarkmið fjölskyldumiðstöðvarinnar er að skapa góða aðstöðu fyrir foreldra ungra barna til þess að læra hvert af öðru og fagfólki um ýmislegt sem tengist þroska barna þeirra eins og umönnun, tilfinningatengsl, uppeldi, hreyfingu og málþroska um leið og boðið er upp á sértæk úrræði og snemmtæka íhlutun fyrir fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Farið verður í algera endurnýjun á svæðinu og leiksvæði útbúið fyrir börnin sem einnig er ætlað almenningi þegar leikskólastarfið er ekki í gangi. Fyrirhugað er að halda opinn kynningarfund eftir páska í lok apríl. Stefnt er að því að byggingin og leiksvæðið verði fullbúið í lok árs árs 2023 að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

You may also like...