136 brautskráðir úr FB í vor

Útskriftarhópur Fjölbrautaskólans í Breiðholti á þessu vori.

Brautskráningin úr Fjölbrautaskólanum í Breiðholti fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpunni laugardaginn 27. maí. Alls voru 138 brautskráðir á þessu vori. Þar af útskrifuðust 62 með stúdentspróf, 17 af húsasmíðabraut, 22 af rafvirkjabraut, 12 af snyrtibraut, 31 af sjúkraliðabraut og 9 af starfsbraut. 

Verðlaun fyrir bestan árangur á stúdentsprófi hlaut Elísa Nína Luengas Resgonia sem útskrifaðist af félagsvísindabraut. Hún hlaut verðlaun fyrir bestan árangur í ensku, sálfræði og félagsgreinum auk viðurkenningar frá Soropimistaklúbbi Hóla og Fella. Erna Dagbjört Jónsdóttir, sem útskrifaðist af opinni braut, hlaut viðurkenningu úr styrktarsjóði Kristínar Arnalds og Rakel Jóna Ásbjörnsdóttir, sem útskrifaðist af myndlistabraut, hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Breiðholts fyrir félagsstörf.

Myndir: Haraldur Guðjónsson Thors.

Elísa Nína Luengas Resgonia var dúx skólans að þessu sinni.
Rakel Jóna Ásbjörnsdóttir hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Breiðholts.

You may also like...