Þór Sigurgeirsson nýr bæjarstjóri
Þór Sigurgeirsson verður bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Hann tekur við af Ásgerði Halldórsdóttur sem látið hefur af störfum eftir 20 ára starf í bæjarstjórn, þar af í 13 ár sem bæjarstjóri.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar var ákveðið að Ragnhildur Jónsdóttir muni gegna embætti forseta bæjarstjórnar og Magnús Örn Guðmundsson verði formaður bæjarráðs. Þór var bæjarfulltrúi Seltjarnarnesbæjar á árunum 2006 til 2010. Hann var ennfremur formaður Umhverfisnefndar og fulltrúi Seltjarnarnesbæjar í stjórn Sorpu bs. Faðir Þórs, Sigurgeir Sigurðsson var sveitar- og bæjarstjóri Seltjarnarness í röska fjóra áratugi og lengst allra sveitarstjórnarmanna. Hann lét af störfum fyrir réttum 20 árum vorið 2002.