Dýri og félagar spiluðu á Lindarbrautinni

Dýri Guðmundsson og félagar spiluðu fyrir þátt­takendur í Reykja­víkur­­­maraþoni Íslands­banka á Lindar­brautinni laugardaginn 20. ágúst síðast­liðinn og nutu góðs stuðnings Íslands­banka sem útvegaði hljóðkerfi og Skátanna sem skýldu bandinu fyrir norðangjólunni. 

Bandið í ár samanstóð af fulltrúum Lindar­brautar, Melabrautar, Skóla­brautar, Selbrautar og Nesbala eða þeim Dýra Guðmundssyni á gítar, Bjarti Loga Finnssyni söng og gítar, Grétari Elíasi Finnssyni á trommur, Grímkeli Sigurþórssyni á gítar, Guðjóni Rúnarssyni á hljómborð, Kára Indriðasyni á bassa og Kristni Ólafssyni á munnhörpu. Það var frábært að Dýri skyldi treysta sér til að spila í maraþoninu, eins og hann hefur gert um langt árabil. Hann hefur leitt hóp Nesara sem hafa gefið hlaupurum aukakraft til að kljást við Lindarbrautarbrekkuna. Þau hjón, Dýri og Hildur, hafa dvalið á Hrafnistu lungann af þessu ári.

Dýri Guðmundsson að leika á gítarinn.

You may also like...