Nýtt íþróttahús ÍR vígt

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri vígði nýtt og stórglæsilegt íþróttahús ÍR við Skógarsel. Athöfnin fór fram 27. ágúst. Parket­höllin svokallaða mun í framtíðinni þjóna sem heima­völlur bæði handknattleiks- og körfuknattleiksdeilda félagsins.

Árið hefur svo sannarlega verið viðburðaríkt hjá Íþróttafélagi Reykja­víkur en í maí var Frjáls­íþróttavöllurinn vígður og í byrjun ágúst tók Reykjavíkurborg aftur við rekstri íþróttahússins í Austurbergi, sem verið hefur heimavöllur handknattleiksdeildar ÍR. Nýja parkethúsið er enn einn steinn í vörðu ÍR-inga og fögnuðu íbúar hverfisins og aðrir góðir gestir áfanganum á ÍR-deginum sem fram fór í dag. Sr. Ólafur Jóhann Borg­þórsson, sóknarprestur í Seljakirkju, blessaði nýju húsakynnin og nutu gestir samveru og veitinga á meðan þeir kynntu sér svæðið og starfsemi félagsins. 

Nýja húsið er á tveimur hæðum og er alls yfir 4200 fermetrar. Þar af er íþróttasalurinn um 2400 fermetrar og þar verður hægt að iðka ýmsar íþróttir, bæði æfingar og keppni, en miðað er við að kröfum til keppni í handbolta og körfubolta verði mætt. Mun húsið rúma um 900 áhorfendur.

Ómar Einarsson sviðsstjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur­borgar, Vigfús Þorsteinsson formaður ÍR, Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri, Ingigerður Guðmundsdóttir fyrrverandi formaður ÍR og Runólfur Sveinsson.

You may also like...