Grótta fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Íþróttafélagið Grótta fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á fundi aðalstjórnar í vallarhúsi Gróttu miðvikudaginn 2. nóvember síðastliðinn.
Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti viðurkenningarnar til fulltrúa aðalstjórnar og allra deilda félagsins, þ.e. knattspyrnu-, handknattleiks- og fimleikadeildar. Félagið hlaut fyrst viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ árið 2005. „Við hjá Íþróttafélaginu Gróttu erum stolt og þakklát fyrir að fá viðurkenningu ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélag. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að ná þessu markmiði enda keppist Grótta við að vera til fyrirmyndar á öllum sviðum“, sagði Þröstur Þór formaður félagsins af þessu tilefni.