Íris Hrund hlaut hvatningverðlaun gegn einelti

Eliza Reid forsetafrú, Íris Hrund og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra við afhendingu hvatningaverðlaunanna.

Íris Hrund Hauksdóttir náms- og starfsráðgjafi í Hólabrekku­skóla hlaut hvatningaverðlaun fag­ráðs gegn einelti hjá Mennta­málastofnun. Forsetafrú Íslands, Eliza Reid og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­málaráðherra veittu Írisi Hrund verðlaunin við hátíðlega athöfn í Helgafellsskóla, á degi gegn einelti. Hefur einstakt lag á að ná til nemenda

Fagráð gegn einelti hjá Mennta­málastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum þar sem Íris Hrund varð fyrir valinu. Í tilnefningu segir að Íris Hrund sé „faglegur leiðtogi innan skólans sem vinnur markvisst að vellíðan, gleði og velferð allra nemenda. Hún hefur einstakt lag á að ná til nemenda á faglegan og lág­stemmdan hátt.“ Þannig byggi markviss forvarnar­vinna upp ánægða og sjálfs­örugga nemend­ur hefur verið hennar megin viðfangsefni. Hún vinnur leynt og ljóst í anda farsældarlaganna þar sem áherslan er ávallt lögð á velferð barna.

Brennur fyrir hagsmunum barna

Þá segir að; „Íris Hrund hefur komið á og stýrt forvarnarteymi skólans og var með þeim fyrstu að koma slíku teymi á fót. Íris leiðir eineltisteymi skólans og stýrir fundum nemendaverndarráðs af fagmennsku og öryggi. Alla daga vinnur Íris með nemendum skólans, hefur opið hús og hvetur nemendur til að koma til sín hvort sem þeir vilja spjalla, ræða erfið mál eða setja sér markmið til framtíðar. Það sem einkennir Írisi Hrund umfram allt er góð nærvera, fagmennska og hvernig hún brennur fyrir velferð og hagsmunum barna.“

Skóla- og frístundasvið Reykja­víkurborgar óskar Írisi Hrund innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu á hennar mikilvæga starfi.

You may also like...