Mikil stemning á skemmtilegri jólahátíð bókasafnsins

Það ríkti með eindæmum mikil spenna og gleði á jólahátíð bókasafnsins nýverið. Hátíðin hófst með Jólatónstöfum þegar að krakkarnir í Skólalúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarnarness spiluðu fyrir fullu húsi undir stjórn Kára Einarsson skólastjóra. Unga tónlistarfólkið stóð sig afburðavel og ljóst að þau eiga framtíðina fyrir sér í tónlist. Kári og Sverrir Hjaltason, básúnuleikari og eldri nemandi í tónlistarskólanum, tóku svo við og léku hvert jólalagið á fætur öðru og komu gestum á öllum aldri í mikla jólastemningu. 

Toppurinn á jólahátíðinni var svo þegar að tveir hressir jólasveinar birtust á bókasafninu til að hitta börnin. Hátíðin breyttist snarlega í sannkallað jólaball þegar að jólasveinarnir, börn og foreldrar dönsuðu saman í kringum fallega bókajólatréð undir tónlistarflutningi Sverris og Kára. Jólasveinarnir skemmtu sér vel eins og allir, sungu og dönsuðu með börnunum, gáfu mandarínur og fengu að vera með nokkrum á myndum. Síðast en ekki síst tóku þeir á móti óskum um hvað þeir ættu helst að setja í skóinn enda styttist óðfluga að skór af öllum stærðum og gerðum fari út í gluggana á Seltjarnarnesi. 

Jólahátíðin var svo sannarlega velheppnuð og ekki annað að sjá en að bæði stórir sem smáir hefðu verið í miklu jólaskapi og notið alls jólafjörsins sem boðið var upp á á Bókasafni Seltjarnarness. 

You may also like...