Einingar reistar fyrir nýja leikskólabyggingu

Unnið að flutningi eininganna.

Unnið er að því að reisa nýjar færanlegar einingar fyrir Leikskóla Seltjarnarness á lóðinni Skólabraut 1. Er það gert í tengslum við fyrirhugaða byggingu á nýjum leikskóla.

Nýja húsnæði leikskólanns á Skólabrautinni mun bera nafnið Skólabrekka og kemur í stað Fögrubrekku sem nú stendur á lóðinni Suðurströnd 1 en víkur þaðan vegna áforma Seltjarnarnesbæjar um byggingu á nýjum tveggja hæða leikskóla “Undrabrekku” sem þegar hefur verið kynnt. 

You may also like...