Framkvæmdum á að ljúka á næsta ári
Verið er að byggja allt að 7,6 þúsund fermetra íbúðarhúsnæðis á Steindórsreitnum auk atvinnurýma í Vesturbænum, sem oft hefur verið kallaður BYKO-reiturinn eftir að BYKO rak verslun í gömlu Steindórshúsunum um tíma. Um er að ræða byggingu þriggja húsa með 84 íbúðum og sameiginlegum bílakjallara. Framkvæmdir hófst haustið 2021 og áætlað er að þeim ljúki á næsta ári.
Fjárfestingarfélagið IREF, sem er í eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, tveimur af aðaleigendum Re/Max eignaðist helmingshlut í félaginu U22 ehf. á síðasta ári en helsta eign síðarnefnda félagsins er Steindórsreiturinn við Hringbraut Eignabyggð ehf., sem er í eigu Hannesar Þórs Baldurssonar og Brynjólfs Smára Þorkelssonar tók við eignarhaldi á U22 af fasteignafélaginu Kaldalóni haustið 2021 en eignin var hluti af endurgjaldi í kaupum Kaldalóns á atvinnuhúsnæði. IREF eignaðist svo helmingshlut í U22 á móti Eignabyggð í fyrra. Bókfært verð Steindórsreitsins við Sólvallagötu 79 var 3,4 milljarðar í lok síðasta árs.