Sóló æfir og leikur í Seltjarnarneskirkju

Hljómsveitin Sóló í Seltjarnarneskirkju.

Hljómsveitin Sóló, sem upphaflega var stofnuð árið 1961, hefur gengið í endurnýjun lífdaga undanfarin ár. Hljómsveitin æfir reglulega í Seltjarnarneskirkju og kemur fram við guðsþjónustur þar af og til. Þann 11. júní leiddi hljómsveitin tónlistina í kirkjunni og fékk afar góðar viðtökur. 

Óhætt er að segja að hinn trúarlegi þáttur í lagavali hljómsveitarinnar hafi aukist, a.m.k. þegar hún leikur í kirkjunni. Þannig léku þeir í morgun m.a. lagið “Traustur vinur”, “Í bljúgri bæn” og “Ó þá náð að eiga Jesú”. Mesta athygli og áhrif vakti þó lag Eric Claptons “Tears in Heaven”. Þá voru þeir félagar með eitt af þeim lögum sem þeir hafa löngum leikið “Someone, someone”  sem upphaflega var flutt af ensku hljómsveitinni Tremeloes. Hljómsveitin er lék í kirkjunni 11. júní var skipuð Árna Áskelssyni, Ólafi Má Ásgeirssyni, Lárusi Hjaltested og Sturlu Má Jónssyni. 

Á þessum árstíma er kirkjusókn yfirleitt með minna móti enda fólk mjög á faraldsfæti. Þó voru á fjórða tug kirkjugesta við helgistund þennan morgun og klöppuðu vel fyrir hljómsveitinni. Sr. Bjarni Þór stjórnaði helgistundinni og talaði einkum um “þrenninguna” í góðri prédikun. Fínar veitingar voru svo í boði í safnaðarheimilinu að messu lokinni. – Ánægjuleg stund segir í frétt frá kirkjunni.

You may also like...