Lóðum úthlutað í Skerjafirði

Fyrirhuguð byggð í Skerjafirði.

Borgarráð hefur samþykkt að úthluta lóð og byggingarrétti til Félagsstofnunar stúdenta fyrir 110 námsmannaíbúðir í nýja Skerjafirði fyrir 95 nýjum íbúðum til Bjargs íbúðafélags í sama hverfi.

Nokkur mál er varða fyrsta áfanga í nýja Skerjafirði voru tekin fyrir á fundi borgarráðs. Samþykktar voru heimildir til að bjóða til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði, verslunar- og þjónustulóð með bílastæðahúsi fyrir hverfið og svo lóð fyrir verslunarhúsnæði. Einnig var samþykkt að úthluta byggingarrétti fyrir 110 námsmannaíbúðir á þremur til hæðum á lóð við Otursnes 62. Þá var samþykkt að úthluta lóð og byggingarrétti fyrir 95 íbúðir á tveimur til fimm hæðum í fjórum húsum á lóð við Reginsnes 10.

You may also like...