Tjörnin hlaut þrenn hvatningarverðlaun

Guðrún Kaldal og Jakob Jakobsson fá viðurkenningu fyrir tilfinningaspjöld

Frístundamiðstöðin Tjörnin hlaut þrenn hvatningar­verðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur að þessu sinni. Ráði veitir árlega fimm verðlaun og í ár fóru þrenn af þeim til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnar­innar. Tjörnin er frístundamiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða og starfrækir sex félagsmiðstöðvar og sjö frístundaheimili í borgar­hlutanum.  

Verkefnið Treystum böndin fékk verðlaun sem samstarfsverkefni er forvarnarátak félagsmiðstöðva Tjarnarinnar. Frábær árangur hefur náðst í forvarnarstarfi á Íslandi undanfarin 20 ár en undanfarin misseri hefur starfsfólk félagsmiðstöðva því miður orðið vart við vísbendingar um aukna áhættuhegðun meðal unglinga og slaka í félagslegu taumhaldi og var því ákveðið að fara af stað með verkefnið Treystum böndin til að bregðast við þeirri þróun. Markmið verkefnisins er að efla starfsfólk félagsmiðstöðvanna í að bregðast við áhættuhegðun, þjálfa þau í vettvangsstarfi og styrkja þau í virkja foreldra til samstarfs og samráðs. Einnig hefur verkefnið miðað að því að virkja foreldrasamráð, vekja foreldra til umhugsunar um forvarnarmódelið og blása lífi í foreldraröltið sem er mikilvægur þáttur í forvarnarstarfi. Félagsmiðstöðvarnar Frosti, Gleðibankinn hlutu verðlaun sem samstarfsverkefni. Verkefnið hlaut styrk í þróunarsjóði menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast. Verkefnastjórar Tjarnarinnar voru Andrea Marel, Eva Halldóra Guðmundsdóttir og Guðrún Kaldal.

Tilfinningaspjöld

Tilfinningaspjöld fengu verðlaun sem nýsköpunar- og þróunarverkefni. Tilfinningaspjöldin kenna 12 tilfinningar sem hægt er að flokka í jákvæðar og erfiðar. Það er mikilvægt að tala ekki um neikvæðar tilfinningar heldur kenna þeim að allar tilfinningar eru eðlilegar og að allir lendi í því í lífinu að upplifa margs konar tilfinningar. Með því að vinna með spjöldin er hægt að kenna börnunum orðin fyrir tilfinningar, kenna þeim að setja tilfinningar sínar í orð, kenna þeim að hlusta á aðra tala um tilfinningar sínar, kenna börnum að sýna samúð og efla jákvæðar tilfinningar, kenna þeim að átta sig á styrkleikum sínum, vinna með vináttu og búa til sögur um tilfinningar. Í frístundaheimilum er lögð rík áhersla á virka börnin til þátttöku í gegnum hópastarf og á lýðræðislegan máta. Lýðræði og félagsfærni eru mjög skyld hugtök því að hæfnin til að deila með öðrum og taka þátt í samfélagi, halda friðinn og lifa í sátt og samlyndi eru allt hæfniþættir sem þarf til að virkja í samfélagi manna og kenna. Börn sem hafa góða stjórn á tilfinningum sínum vegnar betur í leik og skóla og eiga fleiri vini. Í leik með spjöldunum er einnig verið að vinna með sköpun þar sem börnin eru látin leika tilfinningar og einnig að búa til sögur um andlitin sem að á spjöldunum eru. Verkefnið hlaut styrk úr þróunarsjóði menntastefnunnar, Látum draumana rætast. Verkefnastjóri voru Guðrún Kaldal og listamanninn Jakob Jakobsson sem teiknaði spjöldin.

Unglinga gegn ofbeldi

Unglingar gegn ofbeldi fékk verðlaun sem samstarfsverkefni og er metnaðarfullt átak þar sem unglingar fá tækifæri til að fræðast um og berjast gegn ofbeldi í sínu umhverfi. Verkefnið hefur veitt fjölda unglinga vettvang til að framleiða kynningarefni, koma fram opinberlega til að vekja athygli á málefninu og hafa áhrif á fjölda unglinga um allt land. Unglingar gegn ofbeldi hafa einnig verið í góðu samstarfi við Rúv við að taka upp og vinna efni fyrir átakið. Verkefnið, sem unnið er í samstarfi Samfés og Stígamóta, hófst í kjölfar tillögu félagsmiðstöðva frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar á aðalfundi Samfés og hefur Tjörnin frá upphafi verkefnisins verið drifkraftur í framkvæmd þess ásamt Stígamótum og Samfés. Verkefnastjórar Tjarnarinnar voru Eva Halldóra Guðmundsdóttir og Andrea Marel.

Forstöðumenn félagsmiðstöðvanna Frosta, 105, Gleðibankans og 100og1 ásamt Andreu Marel og Guðrún Kaldal fá verðlaun fyrir Treystum böndin, forvarnarverkefni.
Eva Halldóra Guðmundsdóttir, Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir fyrir hönd unglinga og Alexandra Briem frá skóla- og frístundaráði.

You may also like...