Seltjarnarnesbær hlýtur Orðsporið 2019

Á myndinni eru Sonja Jónasdóttir verkefnastjóri, Margrét Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, Baldur Pálsson fræðslustjóri og Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri.

Seltjarnarnesbær hlýtur hvatningarverðlaunin Orðsporið 2019. Verðlaunin eru veitt fyrir að skarar fram úr við efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna en einnig að bæta starfsaðstæður og starfskjör leikskólakennara umfram kjarasamning. Orðsporið er veitt á Degi leikskólans, 6. febrúar ár hvert. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri tók við Orðsporinu úr hendi Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra við hátíðlega athöfn í Leikskólanum Brákarborg. 

Skólamálanefnd Félags leikskólakennara gerði nýverið könnun meðal allra sveitarfélaga landsins þar sem spurt var um atriði á borð við aukinn undirbúningstíma, tölvukost, styttingu vinnuviku, rými barna og ýmis hlunnindi. Fram kom í niðurstöðum könnunarinnar að á Seltjarnarnesi hefur undirbúningstími leikskólakennara verið aukinn, tölvukostur er í góðu lagi, starfsfólki hefur verið fjölgað, föst viðbótargreiðsla er greidd mánaðarlega og leikskólakennarar njóta hlunninda á borð við samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, þeir fá frítt í sund og frítt bókasafnskort. Þá er unnið að styttingu vinnuvikunnar á Seltjarnarnesi. Þess má að auki geta að Seltjarnarnesbær hefur einnig veitt starfsfólki leikskólans stuðning til náms með starfi og að í vor útskrifast sjö starfsmenn skólans með meistaragráðu í leikskólakennarafræðum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, en sex þeirra hafa stundað þar nám með stuðningi bæjarins.

Í tilefni dagsins var mikið um að vera í Leikskóla Seltjarnarness. Verk leikskólabarna eru sýnileg gestum og gangandi víðsvegar um bæinn, á Eiðistorgi, Bókasafni Seltjarnarness, kaffihúsinu Örnu, í sundlauginni og vallarhúsinu við fótboltavöllinn. Hópur leikskólabarna heimsótti Hitaveitu Seltjarnarness og ýmislegt fleira var til gamans gert.

You may also like...