Leikskólabörn heimsækja Seltjörn
Elstu leikskólabörnin á Nesinu, 50 að tölu komu í heimsókn á hjúkrunarheimilið Seltjörn í liðinni viku.
Börnin sungu nokkur lög, sem vakti mikla hrifningu meðal heimilismanna. Þau stóðu sig með prýði og sumir hittu afa sinn og ömmu. Fallegt bros færðist yfir andlit heimilisfólksins þegar börnin komu í heimsókn, sem er svo ánægjulegt að sjá.
Mikilvægt er að leyfa kynslóðunum að hittast.