Húsnæðismálin stærst og Vesturbærinn vinsæll
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir uppbygginguna í Reykjavík þá mestu í sögu borgarinnar. Húsnæðismál eru í algjörum forgangi. Til að auka framboð af íbúðum á viðráðanlegu verði hafi borgin farið í samstarf við stúdenta, eldri borgara, verkalýðshreyfinguna og aðra sem vinna að húsnæðisuppbyggingu án hagnaðarsjónarmiða. Staðfest áform þessara samstarfsaðila eru um 3.700 íbúðir og segir borgarstjóri mikilvægt að þau komist sem fyrst til framkvæmda.
Dagur segir sterka niðurstöðu ársreiknings borgarinnar fyrir 2016 endurspegla trausta fjármálastjórn og honum finnst gott að góður friður sé um stjórn borgarinnar. Stóra verkefnið sé að þróa kraftmikla og spennandi borg sem tryggi íbúum sínum jafnframt öryggi og lífsgæði. Lykilmálin séu málefni ungs fólks og eldri borgara. „Við verðum að standa saman um öfluga höfuðborg sem er samkeppnishæf við þær borgir sem við berum okkur saman við. Hér verða að vera öflug fyrirtæki sem geta greidd góð laun. Öflugir leik- og grunnskólar eru líka lykilatriði þegar fólk velur sér búsetu. Nú þegar höfum við samþykkt að stofna ungbarnadeildir í nokkrum leikskólum í borginni.“ Dagur segir að Vesturbærinn sé hverfi sem búi að miklum félagsauð og sterku baklandi. Mikið sé um að vera í og við vesturbæinn og enn meira framundan. Dagur vonast eftir góðri samvinnu og sátt um uppbyggingu á KR-svæðinu og að fleiri geti átt kost á að búa í þessu eftirsótta hverfi í borginni.
Leiðarljósið er öruggt húsnæði fyrir alla
– Húsnæðismálin eru óneitanlega stærsta málið í dag en hvernig náum við markmiðum að búa til borg með húsnæði fyrir alla?
Dagur segir mikilvægt að hafa yfirsýn og um leið veita öðrum yfirsýn. „Árin 2015 og 2016 voru metár í uppbyggingu í borginni en þetta ár verður enn stærra og næstu ár sömuleiðis. Það veitir ekki af því vegna þess að eftirspurnin eftir húsnæði hefur vaxið hratt. Við höfum lagt áherslu á að framboð af litlum og meðalstórum íbúðum aukist og að eins mikið af íbúðum og hægt er verði byggðar af félögum sem ekki eru að byggja í hagnaðarskyni til að stuðla að því að húsnæðið verði á viðráðanlegu verði. Við höfum líka beitt okkur fyrir samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu því ef við leggjumst öll á eitt náum við jafnvægi á húsnæðismarkaðnum fyrr en ella. Leiðarljósið á að vera öruggt húsnæði fyrir alla, líka fjölskyldur og fólk sem hefur minna á milli handanna.“
Sterk staða fjármála
– Athygli vakti að ársreikningur borgarinnar fyrir síðast ár skilaði hagnaði. Hverjar eru skýringarnar?
„Já, það er rétt. Niðurstaðan var sterk en kom ekki af sjálfu sér. Við höfum náð árangri í fjármálunum, launin hækkuðu umtalsvert hjá borginni, einsog víða annars staðar og nú hefur tekist með aðhaldi að skila afgangi þrátt fyrir þær kjarabætur. Þar hefur bæði tekist að lækka kostnað og tekjur hafa aukist með hækkandi tekjum í samfélaginu. Fyrirtæki borgarinnar skila líka afgangi og þar vegur þyngst að björgunaráætlunin sem við gerðum fyrir Orkuveituna fyrir fimm árum hefur gengið eftir í einu og öllu. Við höfum líka ráðist í rekstarúttektir á öðrum fyrirtækjum og þau eru nú öll komin á réttan kjöl. Vegna þessa viðsnúnings í fjármálum treystum við okkur á síðasta ári til að bæta tæpum milljarði inn í skólana, við höfum líka sett fram fimm ára áætlun um stórátak í viðhaldi á götum og malbiki og erum að leggja fjármagn í ýmislegt sem varð að bíða í sparnaðinum eftir hrun.“
Vesturbærinn eftirsótt hverfi
– Varðandi Vesturbæinn þá vakti heimsóknin þín í hverfið á síðasta ári athygli. Hver eru stærstu verkefnin sem snúa að Vesturbænum?
Dagur segir ótrúlega margt að gerast í Vesturbænum þessa dagana. „Það var ótrúlega gaman að fylgjast með KR-ingunum taka Grindvíkinganna í úrslitarimmunni í Frostaskjóli. KR-ingar eru líklega með besta körfuboltalið í sögu íþróttarinnar hér á landi. Íþróttalífið í Vesturbænum er ótrúlega magnað. „Ég hef átt mjög gott samstarf við KR og sameiginlega tókum við það skref í haust að gerð var yfirlýsing um aukið samstarf félagsins og Gróttu á Seltjarnarnesi í tengslum við samning um endurbætur á fimleikaaðstöðunni úti á nesi en stór meirihluti krakkanna sem æfa þar eru Reykvíkingar úr Vesturbænum. Ég myndi fagna því ef frekari skref væru stigin í samstarfi á næstu misserum. Sveitafélagamörk eiga að vera aukaatriði í því. En börnin og íþróttirnar aðalatriði.“ Aðspurður um aðstöðumálin hjá KR segir Dagur að KR hafi haft frumkvæði að því að þróa mjög áhugaverðar hugmyndir um svæðið í Frostaskjólinu sem komið sé inn í formlegan samráðshóps borgarinnar og félagsins. Þar eru hugmyndir um knatthús auk mikilla endurbóta á svæðinu. KR-ingar vilja náttúrlega bæta aðstöðuna fyrir krakkana í hverfinu og borgin er mjög jákvæð fyrir því. „Ég fann sterkt fyrir hinu sterka baklandi sem börn í Vesturbænum búa við þegar ég flutti skrifstofuna mína í hverfið síðasta haust. Frístundastarfið er faglegt og stendur í miklum blóma. Við höfum því mjög sterkan grunn til að byggja á til framtíðar.“
Fordæmalaus uppbygging
– Nú er umfangsmikil uppbygging í raun alveg frá Hörpusvæðinu að Örfirisey að segja má. Þetta eru örugglega mestu framkvæmdir í Reykjavík í langan tíma?
Já heldur betur. Svæðið í kringum Hörpu fór í frost eftir hrun eins og þekkt er. Okkur hefur hins vegar lánast að greiða úr því og nú stefnir í að svæðið verði fullbyggt á næstu tveimur til þremur árum. Það sem er sérstaklega flókið er að samtengdur bílakjallari verður undir öllu svæðinu. Geirsgatan á að liggja ofan á honum til framtíðar. Framkvæmdunum hefur því fylgt rask og notast hefur verið við hjáleið sem ber þess merki að vera til bráðabirgða. Við ætlum hins vegar að gera allt sem við getum til að halda henni opinni í gegnum þessar flóknu framkvæmdir og ég á von á því að það gangi eftir. Milli miðborgarinnar og Hörpu munu rísa íbúðir, hótel og fullt af verslunarhúsnæði beggja vegna Geirsgötu. Borgin eignast nýjar og lifandi göngugötur og Harpa verður í miklu betri tengslum við mannlífið í miðborginni en áður. Hafnarstrætið fær líka andlitslyftingu og nýja starfsemi og veitingastaði á jarðhæðum, að ógleymdu straujárninu sem þegar hefur vakið athygli. Vesturbugtin mun svo rísa við Slippinn þar sem 170 íbúðir verða m.a. fyrir stúdenta og ungt fólk, framkvæmdum við Tryggvagötu fer svo að ljúka, skipulag á Byko reit er tilbúið og fer væntanlega í uppbyggingu næsta vetur. Niðurrif og uppbygging er einnig að hefjast á Keilugranda þar sem Búseti mun byggja ódýrarar fjölskylduíbúðir og svo er sjálfur Grandinn að blómstra enn frekar eftir að hið frábæra Marshallhús opnaði. Það er ekkert undarlegt að Vesturbærinn sé jafnvinsæll og raun ber vitni. Með nýrri uppbyggingu á ákveðnum reitum erum við að mæta því, og gera þannig fleira fólki kleift að búa í Vesturbænum enda mjög vinsælt hverfi þar sem fólk vill ala upp börnin sín og eldast.“
Barnafjölskyldur í brennidepli
– Talandi um krakkana, það hefur verið mikil deigla í umræðum um skólamál að undanförnu – stendur til að bæta fjármagni í skólamálin?
„Í mínum huga var mjög tímabært og mikilvægt að geta bætt við fjármunum í skólamálin. Skólarnir voru undirfjármagnaðir. Að sumu leyti var það skiljanlegt því það var sett í forgang að hækka laun starfsfólksins. Annað lykilatriði í mínum huga er að tryggja að öll börn í borginni hafi tækifæri til að stunda innihaldsríkt frístundastarf. Þess vegna höfum við verið að auka stuðning við barnafjölskyldur og frístundaþátttöku barna með hækkun frístundakortsins í 50.000 kr. Þetta er mikilvægur stuðningur því ég er sannfærður um það að reynslan og lærdómurinn sem krakkar fá út úr íþróttum, tónlist eða öðru frístundastarfi er jafn mikilvægt eða jafnvel mikilvægara en hefðbundnar námsgreinar. Við eigum bæði frábær íþróttafélög, dans- og tónlistarskóla og fjölmörg æskulýðsfélög sem gera margt framúrskandi og flott fyrir börnin okkar. Það þekki ég af eigin reynslu sem fjögurra barna faðir.“
Nýjar ungbarnadeildir
– Þið viljið fjölga leikskólaplássum og voruð að koma á fót ungbarnadeildum í borginni. Hvernig heldurðu að það muni ganga?
„Já, ég vonast til þess að þetta gangi vel. Þarna erum við að brúa bilið enn frekar milli fæðingarorlofs og leikskóla þannig að við reynum sífellt að stytta þann óvissutíma sem tekur við frá því að fæðingarorlofi sleppir, þar til barnið fer inn á leikskóla. Nú strax í haust ætlum við að opna fjórar ungbarnadeildir en endanlegt markmið er að öll börn komist inn á leikskóla um leið og fæðingarorlofi lýkur. Það þarf að taka þetta í skrefum en við munum fylgja þessu vel eftir í haust og meta árangurinn út frá því.“
Reykjavík er góð borg til að eldast í
– En hvað með heldri borgarana?
„Ég hef líka átt framúrskarandi samstarf við eldri borgara um alla borg og Félag eldri borgara í Reykjavík. Ég vil að Reykjavík verði framúrskarandi borg til að eldast í. Nú þegar er margt gott, eins og sundlaugarnar, félagsstarfið og heimaþjónustan. Ríkið þarf hins vegar að taka sig þegar kemur að byggingu hjúkrunarheimila og heilbrigðisþjónustu. Ég hef kallað eftir því og rekið eftir, því þetta er lykilatriði. Ég hef líka sérstakan áhuga á að huga að því sem við kemur hreyfingu og möguleikum til hreyfingar og heilbrigði og líðan eldri borgara almennt. Þar höfum við fengið frábærar tillögur um næstu skref í heilsueflingu aldraðra frá hópi sem Ellert B. Schram fyrrverandi forseti ÍSÍ og núverandi formaður Félags eldri borgara í Reykjavík fór fyrir. Að þeirra frumkvæði lækkuðum við aldur þeirra sem fá ókeypis i sund niður í 67 ár og ætlum næsta vetur að gefa út sérstakt Menningar- og heilsukort til að kynna þetta betur, því alls ekki allir eldri borgarar í Reykjavík átta sig á því hvað mikið er í boði, endurgjaldslaust eða fyrir lágt verð. Þannig verður borgin ennþá aldursvænni borg og það er gömul saga og ný – borgir sem eru góðar fyrir eldri borgara eru góðar fyrir alla.“
Stofnbrautakerfið er sprungið
– Samgöngumálin eru mikið til umræðu, umferðin þéttist og það er mikið rætt um svokallaða Borgarlínu. Hvað er á dagskrá til að leysa umferðavandann í Reykjavík?
Já, að mínu mati er stofnvegakerfið sprungið og við sjáum að umferðin þéttist og þéttist á álagstímum. Það er mjög margt sem þarf að gera til að bregðast við þessu. Það fyrsta er að viðurkenna að við erum að fylgja umferðarskipulagi frá 1960 sem gerði alls ekki ráð fyrir svona mikilli bílaeign eða svona mikilli umferð. Á næstu tuttugu árum mun íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölga um í það minnsta 70.000. Ef við byggjum ný hverfi í útjaðri höfuðborgar-svæðisins sem erfitt er að þjóna vel með almenningssamgöngum munu þessir íbúar bætast við morgun og síðdegisumferðina. Það mun einfaldlega aldrei ganga. Þess vegna þarf að byggja nýjar íbúðir í eldri hverfum og þétta byggð. Þannig styttast vegalengdir fólks frá heimili til vinnu og það léttir á umferðinni. Valið stendur einmitt um þetta: að þétta byggð eða þétta umferðina meira.“
Reykjavík þarf Borgarlínu
„Í öðru lagi þarf að fjárfesta miklu meira í samgöngukerfinu heldur en gert hefur verið,“ heldur Dagur áfram. „Mikilvægasta fjárfestingin og sú stærsta er Borgarlína, hágæða almenningssamgöngur, sem þurfa að verða að veruleika sem fyrst. Borgarlínan er nauðsynleg til að tafatíminn í umferðinni stóraukist ekki á komandi árum. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru sammála um mikilvægi þessa verkefnis og við munum kynna líklegt leiðaval og áfangaskiptingu á næstu vikum. Um leið er mikilvægt að halda áfram að efla strætó og gera öllum ferðamátum hátt undir höfði. Þeir sem nota bíl sem aðalferðamáta ættu að fagna öllu því sem gert er fyrir hjólandi og gangandi, svo dæmi sé tekið, því eftir því sem fleiri fara ferða sinna þannig þeim mun meira pláss er á götunum fyrir þá sem keyra.“