Gert við sjóvarnargarðinn
![](https://borgarblod.is/wp-content/uploads/2020/01/Sjovarnargardur-vidgerd-1024x788.jpg)
Nú standa yfir viðgerðir á sjóvarnargarðinum við Norðurströnd á Seltjarnarnesi, rétt hjá hákarlahjallinum. Heildarlengd sjóvarna sem verða endurnýjaðar er um 220 metrar.
Að sögn Gísla Hermannssonar, sviðsstjóra umhverfissviðs bæjarins er oft brimasamt á þessum stað og hefur sjóvarnargarðurinn því látið á sjá og kvarnast verulega upp úr honum á nokkrum stöðum. Vegagerðin hefur umsjón með þessu viðhaldsverkefni sem mun standa yfir næstu vikur. JG vélar í Reykjavík sjá um framkvæmdina. Þeir áttu lægsta tilboð í verkið.