Jáverk og Grótta með samstarfssamning
![](https://borgarblod.is/wp-content/uploads/2023/09/Grotta-Javerk.jpg)
Íþróttafélagið Grótta og fyrirtælið Jáverk hafa gert með sér samstarfssamning þar sem Jáverk verður einn af aðalbakhjörlum félagsins til ársins 2026. Jáverk er öflugt verktakafyrirtæki sem einblínir á traustan og ábyrgan rekstur. Jáverk vinnur nú að uppbyggingu Gróttubyggðar, nýrrar íbúðabyggðar vestast á Seltjarnarnesi, þar sem áður var iðnaðarhverfi við Bygggarða. Í fyrri hluta verkefnisins, sem nú þegar er hafin uppbygging á, verða um 130 íbúðaeiningar af öllum stærðum og gerðum sem afhentar verða nýjum eigendum á komandi misserum með tilheyrandi fjölgun íbúa Seltjarnarness.
Grótta fagnar því að hafa náð samkomulagi við Jáverk um komandi samstarf sem mun koma sér mjög vel félagið. Samningurinn er við Gróttu í heild sinni og munu allar deildir félagsins njóta góðs af stuðningi Jáverks. Grótta treystir á stuðning öflugra bakhjarla eins og Jáverks til að geta haldið úti svo metnaðarfullu íþróttastarfi á Seltjarnarnesi sem raun ber vitni. Þröstur Þór Guðmundsson formaður aðalstjórnar Gróttu og sem undirrituðu samninginn. Þröstur kveðst fagna því að Jáverk hafi bæst við í hóp styrktaraðila félagsins. Frábært væri að fá Jáverk í hóp styrktaraðila Gróttu. Styrkurinn komi til með að nýtast vel við að styrkja enn frekar öflugt íþróttastarf á Seltjarnarnesi.